Newsflash
 
 
Heim
Gestabók
Bloggiđ
Vinnutengt
Ljóđ/lög/sögur
Grafík
Ljósmyndir
Skrár
Tenglar
Leit
Login Form





Týnt lykilorđ ?
Óskráđur notandi? Smelltu hér
Vinir & Skaufar
 Ari Kaldi
 Arnljótur Bjarki
 Ásta Hrönn
 Dúdda Goddezz
 Einar
 Einar Máni
 Gísli Hjörleifsson Veiđimađur.is
 Grétar Orri
 Guđni Hilmars
 Gulli
 Gummi
 Jói Neifjörđ
 Lára systir í Kína
 Óli & Hanna
 Sexan Jóna
 Siggi Bíó
Administrator
! Print Senda
Einkunn notenda: / 0
miđvikudagur, 01 janúar 2025
The web in ENGLISH

Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir)
 
Útitónlist Print Senda
Einkunn notenda: / 0
föstudagur, 01 september 2006
það mætti mér tónlist út á veröndinni þegar ég vaknaði í morgun. Það var svalt úti án þess að vera kalt. Ég staðnæmdist í dyragættinni og hlustaði á hljómana sem ómuðu í kring. Tónlistin var ekki íburðamikil, né hávær, en samt seiðandi og sefjandi.

Hún var ekki ný af nálinni, og flest höfum við heyrt hana áður, en ef til vill ekki gefið okkur tíma til að njóta hennar og íhuga.

Fagurgrænt dökkt grasið og laufin tóku þátt í þessum látlausa gjörningi, sem flestir urðu varir við, en fæstir tóku eftir.

Það var rigningin.Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir)
 
Heiđar Ţórarinn Jóhannsson Print Senda
Einkunn notenda: / 21
miđvikudagur, 05 júlí 2006
15. maí 1954 - 2. júlí 2006.
ImageMig setti hljóðan þegar bróðir minn hringdi og tjáði mér að Heiddi - Snigill #10 - væri dáinn. Þó þekkti ég hann ekki náið. En einhvern veginn þótti mér nú samt vænt um hann. Hjólatöffari fram í fingurgóma, vænsti drengur, og sárt saknað af félögum hans.

Það er sorglegt til þess að hugsa að aðeins rétt ár er síðan haldið var upp á 100 ára afmæli mótorhjólsins og listaverk Heiðars, Fallið, sem hann skóp til minningar um fórnarlömb mótorhjólaslysa, var afhjúpað við Varmahlíð.

    HÞJ
    Einn riddari götunnar, er fallinn í valinn,
    horfinn á braut, og Drottni nú falinn.
    Margir þín minnast, og söknuðinn finna,
    - ég hugsa til þín, þar sem þú minntist hinna.

Með eilífri virðingu.

Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir)
 
Laurent Somers, B.S. Print Senda
Einkunn notenda: / 1
ţriđjudagur, 13 júní 2006
Þá er þessum áfanga náð. Nú hef ég staðfestingu á prenti á því að ég geti það sem ég hef verið að gera undanfarin ár: Forritað. Sumir mótmæla þessari staðhæfingu, þó ekki á grundvelli forritunarkunnáttu minnar heldur hvað gráðan stendur fyrir.
Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir)
Nánar...
 
Ađ dútla í ţrívídd Print Senda
Einkunn notenda: / 36
miđvikudagur, 03 maí 2006
Ég hef mikið dálæti á flestu því sem kemur frá Google. Ég hef mært GMail, Google Earth, Google Maps og Picasa. Nýjustu viðbæturnar við Google flóruna eru Google Calendar (loksins!) og Google SketchUp.
Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir)
Nánar...
 
"Dillandi hlátrasköll"? Print Senda
Einkunn notenda: / 46
miđvikudagur, 25 janúar 2006
<rant> Einhver wannabe skáld skrifaði grein um Ragnar Sverrisson í JMJ í Fréttablaðinu á sunnudaginn.

Hverjum þykir fugl sinn fagur, og sýnist mér sem pistlahöfundi, Kristján J. (hvað svo sem J-ið stendur fyrir), þyki það sem úr fjöður hans komi ferlega fallegt. Svo fallegt, að það fer að skipta meira máli en viðfangsefnið - bregðum hér niður fæti í greinina:


Skrifa athugasemd (1 Athugasemdir)
Nánar...
 
Janúar, tími nýjársheita, Print Senda
Einkunn notenda: / 42
fimmtudagur, 12 janúar 2006
Lalli skokkarhækkandi sólar og nýrra áskorana. Allt skal vera betra. Meira að segja vatnið.  Við þetta tækifæri er ekki úr vegi að líta yfir hápunkta síðasta árs.

Íslendingar fögnuðu um gervallt Ísland þegar ég kom aftur til landsins. Ég kom nefnilega þann 17. júní. Þegar ég kom til landsins tók ég aftur upp á þeirri iðju sem ég hóf í febrúar, þ.e. að hlaupa nokkrum sinnum í viku.

Hlaupagikksgeðveikin náði svo hámarki í september.
Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir)
Nánar...
 
Almannavarnarflauturnar vćla Print Senda
Einkunn notenda: / 46
mánudagur, 13 júní 2005
Hestar í Skövde
Hestar í Skövde
Trúlegast hin mánaðarlega prófun. Ef ekki þá er þetta síðasta færslan.

Ég var að koma inn fyrir stundu, ég hafði ákveðið að bregða mér nýja leið og fór út að reiðskólanum þar sem ég tók nokkurra mínútna pásu áður en að ég lagði af stað heim, sjálfsagt um 10-11 KM hringur. Hálfmaraþon, here I come...

Ég rak augun í frétt um vopnað rán á bensínstöð í Hamraborg.
Skrifa athugasemd (1 Athugasemdir)
Nánar...
 
Hlaupabólan Print Senda
Einkunn notenda: / 48
fimmtudagur, 02 júní 2005
Einu sinni byrjað, þú getur ekki hægt .... ég fór enn og aftur í gær og hljóp af stað og viti menn þegar ég var kominn upp í Norrmalm þá ákvað ég að sjá hvað skrokkurinn þyldi í þetta skiptið og hélt áfram. Upp að sjúkrahúsinu (sniðugur viðkomustaður ef maður er að ofgera sér með hlaupunum) lá leiðin og þaðan tók ég nokkurn hring og síðan til baka fram hjá sjúkrahúsinu og heim aftur. Nema hvað að þegar hálftími var liðinn af þessum hlaupum fóru iljarnar að kvarta sáran. Hvort það var út af því að ég var að nota aðra hlaupaskó veit ég ekki en þegar klukkutími og 10 mínútur voru liðnar af hlaupunum rakst ég á vegg. Ekki bókstaflega heldur fann ég allt í einu hvernig 'eldsneytið' var á þrotum - eða alla vega gall í maganum (haha) eins og í tómri tunnu. Ég harkaði af mér í korter í viðbót en þá voru iljarnar og maginn að kvarta það mikið að pit-stop var óumflýjanlegt og það á fyrsta hring*! Grasbali varð að pytti mínum, nýju 'gúmmíin' voru tekin undan og eftir tveggja mínútna stop fóru skórnir á aftur. Upp var staðið og brunað af stað heim á leið. Eitthvað var gangurinn samt skrýtinn fyrstu metrana en síðan var ég kominn í sama damp og áður og náði að klára hringinn alla leið heim án frekara stopps. Ég held að hringurinn hafi verið einhvers staðar milli 11 og 13 KM á lengd. Kannski maður prófi hálfmaraþon einhvern tímann?

* en eina.
Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir)
Nánar...
 
Annoying Thing Print Senda
Einkunn notenda: / 42
miđvikudagur, 01 júní 2005
Annoying ThingA ding ding ding ding dididing ding bing bing pscht,
Dorhrm bom bom bedom bem bom bedom bom bum ba ba bom bom,
Bouuuuum bom bom bedahm, Bom be barbedarm bedabedabedabeda
Bbrrrrrimm bbrrrrramm bbbrrrrrrrrraammmmm ddddddraammm,
Bah bah baah baah ba wheeeeeee-eeeee-eeeee!

Skrifa athugasemd (2 Athugasemdir)
Nánar...
 
Sci Fi Print Senda
Einkunn notenda: / 37
fimmtudagur, 26 maí 2005
Skövde séđ frá BillingenEf ég segði að mjólkurbílarnir hjá Arla keyrðu á matarolíu væri ég ekki að ljúga því. Ég væri heldur ekki að segja satt. Réttara sagt væri það 2% sannleikur eða 98% lygi. Í hvern lítra af eldsneyti fara nefnilega 2 hundruðustu af rapsolíu í. Tveir hundruðustu sem Geir Haarde Svía fær ekki í sinn kassa trúlegast. Í því ljósi þá er niðurfelling díselolíugjaldsins heima hið besta mál. Hver veit, kannski olíufélögin fari að gera álíka - ég bíð eftir að sjá dælur merktar rapsolíu og frá "99 oktana" Shell kæmi auðvitað EXTRA VIRGIN OLIVE OIL diesel.

Ferðamátinn minn síðustu mánuði er auðvitað mun nátturuvænni. Ég fór út að skokka aftur í dag og þar sem ég hafði látið hjá líða að gera það síðustu tvo dagana þá fór ég aftur upp á Billingen. Myndin er tekin þar uppi af Skövde. Billingen er, eins og ég áður skýrði frá, "fjall". Gæsalappirnar eru þarna því samkvæmt einni skilgreiningu þá er fjall 1.000 fet eða hærra. Og samkvæmt netinu þá skortir Billingen 22 fet upp á það, með sín 978 fet eða 298 metra. Það segir mér líka að ég þurfi aðeins að bæta mig áður en ég reyni við Hlíðarfjallshlaup. Upp í móti alla vega.
Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir)
Nánar...
 
Great Balls of Fire! Print Senda
Einkunn notenda: / 22
sunnudagur, 22 maí 2005
Ef þetta er týpískur sunnudagur í Skövde þá veit ég ekki hvað! En byrjum á byrjuninni. Upp úr hádeginu freistaðist ég í annað hlaup. Það var jú ekki annað hægt. Hitamælirinn gorti af 20 stigum og veðrið fínt þó blési aðeins. Eins og alþjóð veit var Formúlukappakstur í Monaco í dag og ég ætlaði nú ekki að missa af honum. Þegar klukkan var að verða tvö sagði teljarinn á formula1.com að enn væri rúmur klukkutími í kappaksturinn, þannig að ég ætlaði að vera kominn aftur fyrir þann tíma. Í æfingabuxunum og bol fór ég af stað svip svipaðan túr og síðast, nema hvað að ég brá af leið og lengdi mér leiðina í gegnum fagurt skógarsvæði.
Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir)
Nánar...
 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 1 - 34 af 37
Ný ljóđ/new poems

From: Elements
Grípa RSS/Atom
© 2010 Galdur.net • Rísandi sól • Laurent Somers