|
Bloggiđ
|
föstudagur, 01 september 2006 |
það mætti mér tónlist út á veröndinni þegar ég vaknaði í morgun. Það var svalt úti án þess að vera kalt. Ég staðnæmdist í dyragættinni og hlustaði á hljómana sem ómuðu í kring. Tónlistin var ekki íburðamikil, né hávær, en samt seiðandi og sefjandi.
Hún var ekki ný af nálinni, og flest höfum við heyrt hana áður, en ef til vill ekki gefið okkur tíma til að njóta hennar og íhuga.
Fagurgrænt dökkt grasið og laufin tóku þátt í þessum látlausa gjörningi, sem flestir urðu varir við, en fæstir tóku eftir.
Það var rigningin.Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
miđvikudagur, 05 júlí 2006 |
15. maí 1954 - 2. júlí 2006.
Mig setti hljóðan þegar bróðir minn hringdi og tjáði mér að Heiddi - Snigill #10 - væri dáinn. Þó þekkti ég hann ekki náið. En einhvern veginn þótti mér nú samt vænt um hann. Hjólatöffari fram í fingurgóma, vænsti drengur, og sárt saknað af félögum hans.
Það er sorglegt til þess að hugsa að aðeins rétt ár er síðan haldið var upp á 100 ára afmæli mótorhjólsins og listaverk Heiðars, Fallið, sem hann skóp til minningar um fórnarlömb mótorhjólaslysa, var afhjúpað við Varmahlíð.
HÞJ Einn riddari götunnar, er fallinn í valinn, horfinn á braut, og Drottni nú falinn. Margir þín minnast, og söknuðinn finna, - ég hugsa til þín, þar sem þú minntist hinna.
Með eilífri virðingu.
Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
ţriđjudagur, 13 júní 2006 |
Þá er þessum áfanga náð. Nú hef ég staðfestingu á prenti á því að ég geti það sem ég hef verið að gera undanfarin ár: Forritað. Sumir mótmæla þessari staðhæfingu, þó ekki á grundvelli forritunarkunnáttu minnar heldur hvað gráðan stendur fyrir. Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
miđvikudagur, 03 maí 2006 |
Ég hef mikið dálæti á flestu því sem kemur frá Google. Ég hef mært GMail, Google Earth, Google Maps og Picasa. Nýjustu viðbæturnar við Google flóruna eru Google Calendar (loksins!) og Google SketchUp. Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
miđvikudagur, 25 janúar 2006 |
<rant> Einhver wannabe skáld skrifaði grein um Ragnar Sverrisson í JMJ í Fréttablaðinu á sunnudaginn.
Hverjum þykir fugl sinn fagur, og sýnist mér sem pistlahöfundi, Kristján J. (hvað svo sem J-ið stendur fyrir), þyki það sem úr fjöður hans komi ferlega fallegt. Svo fallegt, að það fer að skipta meira máli en viðfangsefnið - bregðum hér niður fæti í greinina:
Skrifa athugasemd (1 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
fimmtudagur, 12 janúar 2006 |
hækkandi sólar og nýrra áskorana. Allt skal vera betra. Meira að segja vatnið. Við þetta tækifæri er ekki úr vegi að líta yfir hápunkta síðasta árs.
Íslendingar fögnuðu um gervallt Ísland þegar ég kom aftur til landsins.
Ég kom nefnilega þann 17. júní. Þegar ég kom til landsins tók ég aftur
upp á þeirri iðju sem ég hóf í febrúar, þ.e. að hlaupa nokkrum sinnum í
viku.
Hlaupagikksgeðveikin náði svo hámarki í september. Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
mánudagur, 13 júní 2005 |
 Hestar í Skövde Trúlegast hin mánaðarlega prófun. Ef ekki þá er þetta síðasta færslan.
Ég var að koma inn fyrir stundu, ég hafði ákveðið að bregða mér nýja
leið og fór út að reiðskólanum þar sem ég tók nokkurra mínútna pásu
áður en að ég lagði af stað heim, sjálfsagt um 10-11 KM hringur. Hálfmaraþon, here I come...
Ég rak augun í frétt um vopnað rán á bensínstöð í Hamraborg. Skrifa athugasemd (1 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
fimmtudagur, 02 júní 2005 |
Einu sinni byrjað, þú getur ekki hægt .... ég fór enn og aftur í gær og
hljóp af stað og viti menn þegar ég var kominn upp í Norrmalm þá ákvað
ég að sjá hvað skrokkurinn þyldi í þetta skiptið og hélt áfram. Upp að
sjúkrahúsinu (sniðugur viðkomustaður ef maður er að ofgera sér með
hlaupunum) lá leiðin og þaðan tók ég nokkurn hring og síðan til baka
fram hjá sjúkrahúsinu og heim aftur. Nema hvað að þegar hálftími var
liðinn af þessum hlaupum fóru iljarnar að kvarta sáran. Hvort það var
út af því að ég var að nota aðra hlaupaskó veit ég ekki en þegar
klukkutími og 10 mínútur voru liðnar af hlaupunum rakst ég á vegg. Ekki
bókstaflega heldur fann ég allt í einu hvernig 'eldsneytið' var á
þrotum - eða alla vega gall í maganum (haha) eins og í tómri tunnu. Ég
harkaði af mér í korter í viðbót en þá voru iljarnar og maginn að
kvarta það mikið að pit-stop var óumflýjanlegt og það á fyrsta hring*!
Grasbali varð að pytti
mínum, nýju 'gúmmíin' voru tekin undan og eftir tveggja mínútna stop
fóru skórnir á aftur. Upp var staðið og brunað af stað heim á leið.
Eitthvað var gangurinn samt skrýtinn fyrstu metrana en síðan var ég
kominn í sama damp og áður og náði að klára hringinn alla leið heim án
frekara stopps. Ég held að hringurinn hafi verið einhvers staðar milli
11 og 13 KM á lengd. Kannski maður prófi hálfmaraþon einhvern tímann?
* en eina. Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
miđvikudagur, 01 júní 2005 |
A ding ding ding ding dididing ding bing bing pscht,
Dorhrm bom bom bedom bem bom bedom bom bum ba ba bom bom,
Bouuuuum bom bom bedahm, Bom be barbedarm bedabedabedabeda
Bbrrrrrimm bbrrrrramm bbbrrrrrrrrraammmmm ddddddraammm,
Bah bah baah baah ba wheeeeeee-eeeee-eeeee!
Skrifa athugasemd (2 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
fimmtudagur, 26 maí 2005 |
Ef ég segði að mjólkurbílarnir hjá Arla keyrðu á matarolíu væri ég ekki
að ljúga því. Ég væri heldur ekki að segja satt. Réttara sagt væri það
2% sannleikur eða 98% lygi. Í hvern lítra af eldsneyti fara nefnilega 2
hundruðustu af rapsolíu í. Tveir hundruðustu sem Geir Haarde Svía fær
ekki í sinn kassa trúlegast. Í því ljósi þá er niðurfelling
díselolíugjaldsins heima hið besta mál. Hver veit, kannski olíufélögin
fari að gera álíka - ég bíð eftir að sjá dælur merktar rapsolíu og frá
"99 oktana" Shell kæmi auðvitað EXTRA VIRGIN OLIVE OIL diesel.
Ferðamátinn minn síðustu mánuði er auðvitað mun nátturuvænni. Ég fór út
að skokka aftur í dag og þar sem ég hafði látið hjá líða að gera það
síðustu tvo dagana þá fór ég aftur upp á Billingen. Myndin er tekin þar uppi af Skövde. Billingen er, eins og ég
áður skýrði frá, "fjall". Gæsalappirnar eru þarna því samkvæmt einni
skilgreiningu þá er fjall 1.000 fet eða hærra. Og samkvæmt netinu þá
skortir Billingen 22 fet upp á það, með sín 978 fet eða 298 metra. Það
segir mér líka að ég þurfi aðeins að bæta mig áður en ég reyni við
Hlíðarfjallshlaup. Upp í móti alla vega. Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
sunnudagur, 22 maí 2005 |
Ef þetta er týpískur sunnudagur í Skövde þá veit ég ekki hvað! En
byrjum á byrjuninni. Upp úr hádeginu freistaðist ég í annað hlaup. Það
var jú ekki annað hægt. Hitamælirinn gorti af 20 stigum og veðrið fínt
þó blési aðeins. Eins og alþjóð veit var Formúlukappakstur í Monaco í dag og ég
ætlaði nú ekki að missa af honum. Þegar klukkan var að verða tvö sagði
teljarinn á formula1.com að enn væri rúmur klukkutími í kappaksturinn,
þannig að ég ætlaði að vera kominn aftur fyrir þann tíma. Í
æfingabuxunum og bol fór ég af stað svip svipaðan túr og síðast, nema
hvað að ég brá af leið og lengdi mér leiðina í gegnum fagurt
skógarsvæði. Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
föstudagur, 20 maí 2005 |
... og ég er ekki langt frá því. Eftir napran gærdaginn ákvað ég að
fara út að skokka. Hálftíma? Klukkutíma? Ég var ekki viss. En þegar upp
í Norrmalm var komið þá stóðst ég ekki mátið og þotinn var ég af stað
og stefndi norður. Hringurinn reyndist vera rúmir 8 KM með tveimur 2
mínútna stoppum - hið fyrra til að koma 'mótornum' í rétt smurt ástand,
hið seinna til að létta aðeins á 'vatnstanknum'. Reyndar held ég að það
hafi gerst á vatnsverndarsvæði Skaufverjanna. Ssssshhhh! Næst ætla ég
mér í 10 kílómetrana. Ég held ég fari þá í gegnum Aspögarðinn og líti á
hestana þar - nei ekkert svindl, bara skoða. Reyndar sakna ég þess
aðeins að fara á hestbak. Út að ríða í guðsgrænni náttúrunni - ó já. Skrifa athugasemd (1 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
fimmtudagur, 19 maí 2005 |
þegar Danir syngja á ensku. Fá tungumál vekja jafn mikla klígjukennd
hjá mér og danskan. Áður en að glápt var á nýju Star Wars III var
forkeppnin í Eurovision fyrst á dagskrá, sem lauk í kvöld án þess að
Selma - ein af sigurstranglegri keppendum í augum veðbankanna - kæmist
áfram. Meira að segja kafloðinn klæðskiptingur (Marilyn Manson meets
'Final Countdown' Europe) skaut okkur ref fyrir rass. Skrýtið?
Óneitanlega. Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
sunnudagur, 15 maí 2005 |
Þegar ég leit út í dag þá virtist mér nokkuð ljóst að eina hlaupið í
dag yrði af klístruga kyninu. Eða svo hélt ég. Eftir góðviðrið síðustu
vikuna þá er ekki hægt að kvarta mikið yfir tíðarbreytingunni. Létt
rigning og enn bíð ég eftir almennilegu þrumuveðri til að negla á
stafrænt form. Ég heyrði þá háværustu þrumu sem ég hef held ég nokkurn
tímann heyrt í síðustu viku en síðan varð lítið meira úr því í það
skiptið.
En svo einkennilegt er það með hlaup að það er aðeins vanabindandi - og
engan viðvörunarmiða var að finna á hlaupaskókassanum um það. Klukkan
var að síga í að verða sex þegar ég stóðst ekki lengur mátið og fór í
hlaupaskóna og skokkaði sem leið lá upp að Norrmalm og hring þaðan til
baka. Stuttur hringur en ólíkt fyrri hlaupum var meiri hraði, meira táberg og minni hæll í þessari undir lokin. Gott mál.
Ég verð reyndar að ljóstra því upp að á föstudaginn hljóp ég aftur upp
á Billingen. Skrifa athugasemd (1 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
|
sunnudagur, 08 maí 2005 |
...kemur
niður aftur. Á föstudaginn byrjaði ég daginn á skokki eins og
vanalega en þar sem veðrið var svo fínt ákvað ég að taka lengri hring
og skokka út að Willys og til baka einn hring. Ég byrjaði að fara efri
leiðina en þegar ég var vel á veg með að komast þangað leit ég upp og
ég gat ekki neitað því að fögur var hlíðin - ég breytti því um stefnu
og ákvað að skokka alla leið upp á toppinn á Billingen fjallinu. Þeir
kalla það víst fjall hérna, Svíarnir að ég held.Það er líka fínasta útivistarsvæði þarna upp frá. Ég var frekar óviss með
stígana þannig að ég fylgdi bara veginum upp eftir. Ég var staðráðinn í
að komast alla leið upp á toppinn án þess að stoppa en á endanum munaði
sjálfsagt um 20-30 metra upp á. Þarna efra er u fínar brautir til
skokks og skíðagöngu og samkvæmt Sænskukennaranum er þarna gufubað sem
ég ætla mér að prófa næst. Ég held ég hjóli þangað samt skokki þaðan
einhverja brautina en maður veit aldrei. Fyrst það vantaði svo lítið
upp á í þetta skiptið þá á ég sjálfsagt eftir að taka eina ferð upp og
niður aftur að minnsta kosti. Þegar ég kom heim hafði ég ekki hugmynd
um hve löng leið þetta var en dó ekki ráðalaus - inn fór ég á Mappoint
og gat sett inn punkta sem vit var í - heildarvegalengd aðra leið var
3.8 km - sem sagt 8 KM í það heila og meðalhraða upp á 8.5 KM/klst á
leiðinni upp.
Ah, undur tækninnar. Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
|
ţriđjudagur, 03 maí 2005 |
Það
er úrhellisrigning í Skaufabæ. Regndroparnir dansa á malbikinu
við dynjandi trommuslátt á þakrennunum, og skærgrænt grasið tekur
endalaust við. Vatnið streymir í götuköntunum fram og hverfur af
yfirborði jarðar. Himininn er steingrár og lætur í veðri vaka að
ljósadýrð og háværari drunur komi síðar. Stöku regnhlífar eru á sveimi,
með fólki hangandi neðan úr em lætur sér fátt um finnast.
Mér finnst rigningin góð og neita því ekki að helst langar mig til að
fara í hlaupagallann út að hlaupa í rigningunni. En ég svaf ekkert í
nótt og held ég ætti frekar að sleppa því í bili. Hlaupinu altsvo.
Svefninn væri aftur á móti snilldarráð.
Nótt og dagur renna saman í eitt þar sem ég er á fullu í Java forritun
á þessu þvílíka vöruhúsi. Gamla verkefnið mitt fær allsherjar svokallað
MVC Makeover og lítur út alveg deadsexy. Undir niðri, þ.e.a.s. Ef
ég næ þrívíddinni inn þá verður yfirborðið það líka. Ég hef tekið
drjúgan tíma í arkitektúrinn, enda skiptir hann veigamestu máli. Þegar
kemur að forritun þá er betra að vera skjaldbakan en hérinn og vanda
til þessa þáttar því annars fer jafnan illa fyrir kerfinu þegar byggt
er ofan á það... Í upphafi skal endinn skoða og allt það. Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
|
miđvikudagur, 20 apríl 2005 |
Og ekki síst þegar kemur að hugbúnaði. Þeir sem hafa þrjár mínútur
aflögu geta horft á stutt myndband á ensku um þetta hér (Windows AVI/QuckTime/MPEG). Hugbúnaður
hefur til þessa verið höfundarréttarvarinn innan Evrópusambandsins en
nú á að gera hann einkaleyfisbundinn líka! Axlabönd og belti - belti
sem hægt er síðan að bregða um alla þá sem datt það sama í hug en urðu
fyrr í til að punga út fyrir einkaleyfi fyrri því. Fuss og svei!
Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
Nánar...
|
|
|
föstudagur, 08 apríl 2005 |
Þá er annar páfi farinn að sinna öðru fé. Jarðarför Jóhannesar var í
dag og var sýprusviðarkistan í anda trésmiðsins sem kross sinn bar,
einföld og
lítillát. Eflaust hefur hann verið vel meðvitaður um að nú væri komið
að stóru stundinni. En einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að hann
hafi ekki tekið það eins nærri sér og margir sem nú hann syrgja. Eftir
allt saman var hann gamall og hrumur og ekkert unglamb lengur. Og þegar
skrokkurinn er fairnn að bila svona illa þá er kannski eins gott að
leyfa náttúrunni að hafa sinn gang. Páfinn er dauður. Lengi lifi páfinn. Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
|
ţriđjudagur, 05 apríl 2005 |
og flugvöllurinn er neðst til hægri.
Það er ekkert annað! Ísland er 'komið á kortið' hjá Google Maps - nýja
gervihnattaútgáfan af því - þjóðvegur 1 og Glerárgatan er ekki komin í
kortútgáfuna enn. En sjáum bara til! Ég varð hissa að sjá hver
upplausnin er fín á Íslandi miðað við Bretland og afganginn af Evrópu. Ég
sé ekki bróður minn brosa úr Glerárhverfinu en þetta er samt ansi gott. Ísland er þarna í ansi fínni upplausn. Hérna er Googlemaps fréttin.
Þetta rokkar feitt!
Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
|
föstudagur, 01 apríl 2005 |
Og ég er alveg staðráðinn í því. Það er líka einungis eðlilegt framhald
eftir allt saman. Ég byrjaði fyrir nokkrum dögum á morgunskokki til að
koma þolinu aftur á rétta braut og ætla að byrja á því á hverjum
morgni. Það er líka rétt núna sem farið er að viðra vel til þess.
Snjórinn er á bak og burt og 'ofsahitinn' síðustu daga gjörsamlega æpir
á mann að drífa sig út.
Og ef trúa ætti The Register í dag, þá verður Steve Jobs, Apple-toppurinn (epplistoppur?), starfandi framkvæmdastjóri IKEA frá og með næsta mánuði. Mér finnst stóllinn einkar .... áhugaverður. Loksins gæti ég boðið Bill Gates í kaffi. Ef ég hefði tvo til viðbótar gæti ég boðið Ballmer líka.
Update: Og í öðrum fréttum þá fann NASA vatn á Mars og GMail er nú komið í 2 GB og bætir við almennilegum ritþór .... alveg satt! Skrifa athugasemd (0 Athugasemdir) |
|
| | << Byrjun < Fyrri 1 2 3 Nćsta > Endir >>
| | Niđurstöđur 1 - 24 af 53 |
|
|
|