Heim arrow Bloggið arrow Þankar arrow Janúar, tími nýjársheita,
Top Module Empty
 
 
Heim
Gestabók
Bloggið
Vinnutengt
Ljóð/lög/sögur
Grafík
Ljósmyndir
Skrár
Tenglar
Leit
Administrator
Janúar, tími nýjársheita, PDF Print Senda
Einkunn notenda: / 42
LélegtBest 
fimmtudagur, 12 janúar 2006
Lalli skokkarhækkandi sólar og nýrra áskorana. Allt skal vera betra. Meira að segja vatnið.  Við þetta tækifæri er ekki úr vegi að líta yfir hápunkta síðasta árs.

Íslendingar fögnuðu um gervallt Ísland þegar ég kom aftur til landsins. Ég kom nefnilega þann 17. júní. Þegar ég kom til landsins tók ég aftur upp á þeirri iðju sem ég hóf í febrúar, þ.e. að hlaupa nokkrum sinnum í viku.

Hlaupagikksgeðveikin náði svo hámarki í september.
Fyrst ber að nefna þríþrautina sem KB-banki og FSA stóðu fyrir 10. september. Sund, hjólreiðar og hlaup sem tóku töluvert á. Þó virtist mér sem eftir á að ég hefði getað gefið betur í í sundhlutann, ég hafði verið tregur til þess þar sem ég vildi ekki sprengja mig á fyrsta kaflanum. Þegar kom að hlaupahlutanum var ég orðinn nokkuð þreyttur en gafst ekki upp, sérstaklega þar sem annar keppandi sem ég hafði farið fram úr á hjólinu var farinn að nálgast aftur. Í drullusvaðinu við golfvöllinn hlupum við og ef freistingin til að hægja á mér skaut upp kollinum var ætíð þramm keppandans sem á eftir kom sem glumdi í eyrunum. Undir lokin hafði mér ekki tekist að auka forskotið en ég vissi að þar gat ég tekið góðan endasprett. Þegar um 100-200 metrar voru eftir gaf ég því í - og 'skugginn' minn gerði slíkt hið sama. Ég gaf því enn meira í, og enn meir þar til að lokum ég var á harða hlaupum í átt að marki síðasta spölinn yfir endalínuna.

Viku síðar tók enn þyngri þraut við - hálfmaraþon! UFSA stóð fyrir Akureyrarhlaupi 17. september þar sem valið stóð milli 3, 10 og 21 KM (hálfmaraþons) vegalengda. Þar sem ég hafði verið að hlaupa 3 og 10 kílómetra yfir sumarið þá var engin áskorun í öðru en hálfmaraþoninu.

Veðrið var nokkuð gott, sólríkt, ögn svalt en það skipti ekki máli þegar líkaminn var farinn að erfiða á sínum viðstöðulausa takti. En rokið. Já, rokið! Sadistarnir skipulögðu hálfmaraþonið þannig að hlaupið var í suðurátt vestan við flugvöllinn og þar silaðist maður áfram með vindinn í fanginu. Þegar hlaupið var síðan til baka í bæjarátt tók við mun rólegra veður. Rúmum tveimur tímum eftir startið var ég svo kominn í mark. Takmark næsta árs: Að bæta tímann.

Um báðar þessar þrautir verð ég þó að segja þær voru mjög skemmtilegar. Erfiðar, en skemmtilegar.

Athugasemdir

Aðeins skráðir notendur geta skrifað athugasemdir.
Vinsamlegast skráðu þig inn eða stofnaðu þig.

Powered by AkoComment 2.0!

 
< Fyrri   Næst >
Ný ljóð/new poems
© 2010 Galdur.net • Rísandi sól • Laurent Somers