Ef ég segði að mjólkurbílarnir hjá Arla keyrðu á matarolíu væri ég ekki
að ljúga því. Ég væri heldur ekki að segja satt. Réttara sagt væri það
2% sannleikur eða 98% lygi. Í hvern lítra af eldsneyti fara nefnilega 2
hundruðustu af rapsolíu í. Tveir hundruðustu sem Geir Haarde Svía fær
ekki í sinn kassa trúlegast. Í því ljósi þá er niðurfelling
díselolíugjaldsins heima hið besta mál. Hver veit, kannski olíufélögin
fari að gera álíka - ég bíð eftir að sjá dælur merktar rapsolíu og frá
"99 oktana" Shell kæmi auðvitað EXTRA VIRGIN OLIVE OIL diesel.
Ferðamátinn minn síðustu mánuði er auðvitað mun nátturuvænni. Ég fór út
að skokka aftur í dag og þar sem ég hafði látið hjá líða að gera það
síðustu tvo dagana þá fór ég aftur upp á Billingen. Myndin er tekin þar uppi af Skövde. Billingen er, eins og ég
áður skýrði frá, "fjall". Gæsalappirnar eru þarna því samkvæmt einni
skilgreiningu þá er fjall 1.000 fet eða hærra. Og samkvæmt netinu þá
skortir Billingen 22 fet upp á það, með sín 978 fet eða 298 metra. Það
segir mér líka að ég þurfi aðeins að bæta mig áður en ég reyni við
Hlíðarfjallshlaup. Upp í móti alla vega. Cory Doctorow
starfar hjá EFF en er líka vísindaskáldsagnahöfundur. Mörg verka hans
eru gefin út með Creative Commons skilmálum. Ég las I, Robot
um daginn á netinu og í kvöld þá gat ég ekki slitið mig frá lestri mínum á
Anda's Game. Ekki eins vel skrifaðar sögur og verk uppáhalds-vísindaskádsagnahöfundar míns Dan Simmons,
en ágætar þó. Dan Simmons tilheyrir þeim hópi listamanna sem láta ekki
negla sig við eina tegund bókmennta. Mest er hann þekktur fyrir
vísindaskáldskap og hina epísku Hyperion seríu hef ég lesið alla. Ég á
samt enn eftir að lesa mig í gegnum Ilium (sem byggir á Ódysseifskviðu
aka Iliad) og Olympos. Og enn á ég eftir að lesa The Crook Factory sem byggir á Hemingway og Joe Kurtz spæjaraseríuna hans (Hardcase, Hard Freeze, Hard as Nails).
Athugasemdir
Ađeins skráđir notendur geta skrifađ athugasemdir. Vinsamlegast skráđu ţig inn eđa stofnađu ţig.