|
miðvikudagur, 03 maí 2006 |
Ég hef mikið dálæti á flestu því sem kemur frá Google. Ég hef mært GMail, Google Earth, Google Maps og Picasa. Nýjustu viðbæturnar við Google flóruna eru Google Calendar (loksins!) og Google SketchUp.
Google SketchUp er yndislegt forrit fyrir þá sem vilja prófa að vinna með þrívídd á auðveldan hátt (eins og Google er einatt lagið). Viltu skipuleggja garðinn þinn? Hvernig var með þessa verönd aftur? Hvað með stofuna? Þú getur líka teiknað upp þína eftirlætisbyggingu og deilt henni með öðrum hvort heldur sem er í Google SketchUp safninu eða Google Earth. Og ég sé nú að upplausnin á Íslandskortinu í Google Maps/Google Earth hefur aukist þannig að Akureyrarflugvöllurinn er orðinn greinilegri. Það rétt mótar fyrir ýmsum húsum. Framför ... Lovely.
Aðeins skráðir notendur geta skrifað athugasemdir. Vinsamlegast skráðu þig inn eða stofnaðu þig. Powered by AkoComment 2.0! |