| Almannavarnarflauturnar væla |
| mánudagur, 13 júní 2005 | |||
![]() Hestar í Skövde Ég var að koma inn fyrir stundu, ég hafði ákveðið að bregða mér nýja leið og fór út að reiðskólanum þar sem ég tók nokkurra mínútna pásu áður en að ég lagði af stað heim, sjálfsagt um 10-11 KM hringur. Hálfmaraþon, here I come... Ég rak augun í frétt um vopnað rán á bensínstöð í Hamraborg. Þótt auking vopnaðra glæpa sé sorgleg staðreynd þá er skondið að sjá ræningjann rændan. Já, ef "olíufélögin" er slegið inn í Google gefa leitarniðurstöðurnar frekar ófagra mynd af olíufélögunum, og eru fæstar ef einhverjar jákvæðar. Skýrsla Samkeppnisstofnunar, 40 milljarða stuldur að mati FÍB, og svo mætti lengi telja. Annars er ég að spá í að breyta til og gerast hótelþjónn og græða milljónir dala á að lögsækja gesti sem kasta hlutum í átt til mín. Eða datt þessum það í hug á undan mér? Geggjað.
Aðeins skráðir notendur geta skrifað athugasemdir. Powered by AkoComment 2.0! |
|||