"Dillandi hlátrasköll"?
miğvikudagur, 25 janúar 2006
<rant> Einhver wannabe skáld skrifaði grein um Ragnar Sverrisson í JMJ í Fréttablaðinu á sunnudaginn.

Hverjum þykir fugl sinn fagur, og sýnist mér sem pistlahöfundi, Kristján J. (hvað svo sem J-ið stendur fyrir), þyki það sem úr fjöður hans komi ferlega fallegt. Svo fallegt, að það fer að skipta meira máli en viðfangsefnið - bregðum hér niður fæti í greinina:


"Ég hef lokið við kleinuna og það eina sem minnir á enn á tilvist hennar er ljúffengt eftirbragðið og gulhvítar mylsnur á dökkum diski ..."

Christ on a stick. Ég minni lesendur á að greinin er um Ragnar Sverrisson. Hann bakaði þær ekki sjálfur og því þjónar efnisgreinin engum tilgangi öðrum en að reyna að sýna hve flinkur höfundurinn er. Her hefði a.m.k. þurft óvæginn niðurskurðarhníf prófarkalesara.

Verst fannst mér þó þegar hann talar um "dillandi hlátrasköll." Ha? Þótt frjótt ímyndunarafl hafi, get ég ekki með nokkru móti ímyndað mér hlátrasköll dillandi.
</rant>

Ég er annars að upplifa Dr. Evil 'móment' núna. Hér sit ég á skrifborðsstól með einum snerli og þremur stýristöngum og kastast fram og aftur og upp og niður.

Over and out.

Athugasemdir
hmmmm...
Skrifağ af Guest Şann 2006-03-19 12:02:46
Hmmm..hann hefur kannski veriğ undir áhrifum kleinunnar...kannski eitthvağ 'leynikrydd' í henni?

Ağeins skráğir notendur geta skrifağ athugasemdir.
Vinsamlegast skráğu şig inn eğa stofnağu şig.

Powered by AkoComment 2.0!