Laurent Somers, B.S.
žrišjudagur, 13 jśnķ 2006
Þá er þessum áfanga náð. Nú hef ég staðfestingu á prenti á því að ég geti það sem ég hef verið að gera undanfarin ár: Forritað. Sumir mótmæla þessari staðhæfingu, þó ekki á grundvelli forritunarkunnáttu minnar heldur hvað gráðan stendur fyrir.
Það má eflaust færa rök fyrir því að gráðupappírinn sé merki um að viðkomandi hafi bæði getu til að læra og sömuleiðis þann sjálfsaga sem þarf til að ganga í gegnum þetta áralanga ferli.

En nóg um það. Það er reyndar til marks um það hve tíminn líður stundum hratt að eftir myndatökuna eftir útskriftina var ég mættur í hádegisverð með bekkjarfélögunum sem héldu upp á 2 ára útskriftarafmæli.

Athugasemdir

Ašeins skrįšir notendur geta skrifaš athugasemdir.
Vinsamlegast skrįšu žig inn eša stofnašu žig.

Powered by AkoComment 2.0!