Heišar Žórarinn Jóhannsson
mišvikudagur, 05 jślķ 2006
15. maí 1954 - 2. júlí 2006.
ImageMig setti hljóðan þegar bróðir minn hringdi og tjáði mér að Heiddi - Snigill #10 - væri dáinn. Þó þekkti ég hann ekki náið. En einhvern veginn þótti mér nú samt vænt um hann. Hjólatöffari fram í fingurgóma, vænsti drengur, og sárt saknað af félögum hans.

Það er sorglegt til þess að hugsa að aðeins rétt ár er síðan haldið var upp á 100 ára afmæli mótorhjólsins og listaverk Heiðars, Fallið, sem hann skóp til minningar um fórnarlömb mótorhjólaslysa, var afhjúpað við Varmahlíð.

    HÞJ
    Einn riddari götunnar, er fallinn í valinn,
    horfinn á braut, og Drottni nú falinn.
    Margir þín minnast, og söknuðinn finna,
    - ég hugsa til þín, þar sem þú minntist hinna.

Með eilífri virðingu.

Athugasemdir

Ašeins skrįšir notendur geta skrifaš athugasemdir.
Vinsamlegast skrįšu žig inn eša stofnašu žig.

Powered by AkoComment 2.0!