| Útitónlist |
| föstudagur, 01 september 2006 | ||
|
það mætti mér tónlist út á veröndinni þegar ég vaknaði í morgun. Það var svalt úti án þess að vera kalt. Ég staðnæmdist í dyragættinni og hlustaði á hljómana sem ómuðu í kring. Tónlistin var ekki íburðamikil, né hávær, en samt seiðandi og sefjandi. Hún var ekki ný af nálinni, og flest höfum við heyrt hana áður, en ef til vill ekki gefið okkur tíma til að njóta hennar og íhuga. Fagurgrænt dökkt grasið og laufin tóku þátt í þessum látlausa gjörningi, sem flestir urðu varir við, en fæstir tóku eftir. Það var rigningin.
Ađeins skráđir notendur geta skrifađ athugasemdir. Powered by AkoComment 2.0! |
||